Hoppa yfir valmynd
30. september 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 2/2014

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

1.    Gisting og fæði í einn sólarhring, kr. 24.900

2.    Gisting í einn sólarhring, kr.14.100 

3.    Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag, kr 10.800 

4.    Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag, kr 5.400.                                                                                                 

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. október 2014. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2014 dags. 30. maí 2014.  Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga um gistingu og veitingar verði kynntar starfsfólki.Vakin er athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi: www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum