Hoppa yfir valmynd
1. október 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-ágúst 2014

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu átta mánuði ársins 2014 liggur nú fyrir en í aðalatriðum gefur það upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. Nokkur munur er á greiðsluuppgjöri annars vegar og uppgjöri á rekstrargrunni eins og ríkisreikningur er gerður eftir hins vegar. Hann felst einkum í því að í greiðsluuppgjöri er ekki tekið tillit til ýmissa fjárskuldbindinga og krafna sem áfallnar eru á árinu bæði á tekju- og gjaldahlið sem hafa ekki haft áhrif á greiðslur úr ríkissjóði. 


Handbært fé frá rekstri var jákvætt um 20,4 ma.kr. en var neikvætt um 16,9 ma.kr. á sama tímabili árið 2013. Innheimtar tekjur hækkuðu um 55,8 ma.kr. milli ára en greidd gjöld jukust um 21,4 ma.kr.

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-ágúst 2014

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum