Hoppa yfir valmynd
3. október 2014 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 64/2014 úrskurður 3. október 2014

Mannanafnanefnd-úrskurðir

 

 

            Mál nr. 64/2014                    

Eiginnafn:      Hector

 

 

Hinn 3. október 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 64/2014 en erindið barst nefndinni 8. júlí:

Um rétt aðila máls til endurupptöku fer eftir ákvæðum 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 eða óskráðum reglum stjórnsýsluréttar um endurupptöku.

Ekkert er fram komið sem bendir til þess að úrskurður mannanafnanefndar í máli nr. 42/2010 um skráningu eiginnafnsins Hector, hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik né að hann hafi byggst á atvikum sem hafa breyst verulega frá því að ákvörðun var tekin. Skilyrði til endurupptöku málsins, sbr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 eru því ekki fyrir hendi.

Þegar 24. gr. stjórnsýslulaga sleppir kann mannanafnanefnd eftir atvikum að vera rétt og heimilt að endurupptaka mál á ólögfestum grundvelli. Skylda til slíks veltur þó, að mati nefndarinnar, á því að rökstuddar vísbendingar séu um að á úrskurði hennar séu verulegir annmarkar að lögum. Ekkert er fram komið um að slíkur ágalli hafi verið á fyrri úrskurði nefndarinnar. 

Úrskurðarorð:

Með vísan til þessa er beiðni um endurupptöku máls nr. 42/2010 hafnað.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum