Hoppa yfir valmynd
3. október 2014 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 65/2014 úrskurður 3. október 2014

Mannanafnanefnd-úrskurðir

 

 

     Mál nr. 65/2014                   

Millinafn:       Haugeland

 

 

Hinn 3. október 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 65/2014 en erindið barst nefndinni 11. september:

Samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn skal millinafn dregið af íslenskum orðstofnum en má þó ekki hafa nefnifallsendingu. Millinafnið Haugeland telst ekki dregið af íslenskum orðstofnum og fullnægir því ekki skilyrðum laga um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Haugeland er hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum