Hoppa yfir valmynd
13. október 2014 Matvælaráðuneytið

6.141 tonna byggðakvóta úthlutað til 30 sveitarfélaga

Byggðakvóti
Byggðakvóti

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, hefur úthlutað 6.141 þorskígildistonna byggðakvóta fiskveiðiársins 2014/2015, samkvæmt 10. gr. laga nr. 116/2006, með síðari breytingum og samkvæmt reglugerð ráðuneytisins nr. 651 frá 4. júlí 2014.

Alls er byggðakvóta úthlutað til 30 sveitarfélaga og í þeim fengu 47 byggðarlög úthlutun.

Úthlutun byggðakvótans byggir á upplýsingum frá Fiskistofu um samdrátt í botnfiskafla, botnfiskaflamarki og vinnslu botnfisks annars vegar og samdrætti í rækju- og skelvinnslu hins vegar frá fiskveiðiárinu 2004/2005 til fiskveiðiársins 2013/2014.

Hámarksúthlutun til byggðarlags er 300 þorskígildistonn og fá sex byggðarlög það hámark. Lágmarksúthlutun er 15 þorskígildistonn, eigi byggðarlag á annað borð rétt til úthlutunar, og fá 4 byggðarlög þá úthlutun.

  • Nánari upplýsingar um úthlutunina má sjá hér.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum