Hoppa yfir valmynd
13. október 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að reglugerð um milliverðlagningu til umsagnar

Fjármála- og efnahagsráðuneyti óskar eftir umsögnum við drög að nýrri reglugerð um milliverðlagningu. Drögin eru unnin  af starfshóp sem skipaður var fyrr á árinu, en í honum eiga sæti fulltrúar frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og ríkisskattstjóra. 


Þann 21. desember 2013 voru lögfestar hér á landi sérstakar reglur um milliverðlagningu. Nýju milliverðlagningarreglurnar er að finna í 3.-6. mgr. 57. gr. tekjuskattslaga og komu þær til framkvæmda 1. janúar á þessu ári.

Með hinum nýju milliverðlagningarreglum voru lögfest sérstök ákvæði um milliverðlagningu. Þá var ráðherra veitt heimild til þess að setja með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd reglna um milliverðlagningu, meðal annars um kröfur varðandi skjölun við ákvörðun milliverðlagningar.  

Unnt er að senda umsögn um reglugerðardrögin á netfangið [email protected] til og með 20. október næstkomandi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum