Hoppa yfir valmynd
14. október 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Neysluviðmið og áhrif viðisaukaskattsbreytinga á ráðstöfunartekjur

Frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um breytingar á virðisaukaskatti, vörugjaldi og barnabótum leiðir til þess að einstaklingar hafi meira á milli handanna og verðlag lækki. Gert er ráð fyrir því að tekjur ríkissjóðs dragist saman um 3,7 ma. kr. vegna aðgerðanna. Skattar eru því að lækka.  

Breytingar á virðisaukaskattskerfinu og afnám vörugjalda er hluti af endurskoðun skattkerfisins. Markmiðið er að lækka skatta, einfalda skattframkvæmd, auka skilvirkni kerfisins með færri undanþágum og minni hvata til undanskota og styrkja þar með virðisaukaskattskerfið með tilheyrandi þjóðhagslegum ávinningi. Fyrirhuguð breyting á virðisaukaskattskerfinu er forsenda þess að unnt sé að ráðast í beinar tekjuskattslækkanir. 

Hvergi í frumvarpi til breytinga á virðisaukaskatti, vörugjaldi og barnabótum er það forsenda fyrir niðurstöðum þess að ákveðinni upphæð sé varið til matarinnkaupa, hvorki í heild né á hverja máltíð. Einungis eru dregin upp dæmi til að gefa einhverja mynd af áhrifum breytinganna á ráðstöfunartekjur. Gert er ráð fyrir að vægi matvæla og drykkjarvöru sé 16,2% af heildarútgjöldum. Er það byggt á hlutfallstölum um skiptingu útgjalda í samræmi við opinberar tölur frá Hagstofu Íslands sem fengnar eru úr neyslukönnun sem gerð var árin 2010-2012 og byggð á gögnum frá 1772 heimilum. 

Um er að ræða sambærilegar tölur og ASÍ leggur til grundvallar útreikningum sínum um matarútgjöld heimila,  Rannsóknarsetur verslunarinnar, og Viðskiptaráð Íslands

Í fylgiskjali með frumvarpinu er að finna nokkur dæmi um fjölskyldur með og án barna, miðað við mismunandi heildarútgjöld og tekjur, þar sem fram kemur að það er sterkt samband á milli þess sem menn afla og eyða. Þannig má álykta miðað við gefnar forsendur að fjögurra manna fjölskylda sem eyðir 2 m.kr. á ári eða tæpum 170 þús. kr. á mánuði í mat hafi hátt í 1,5 m.kr. á mánuði í atvinnutekjur fyrir skatta og verji hærri upphæðum í krónum talið til matarinnkaupa en fjölskylda með lægri tekjur. Áhrif frumvarpsins á ráðstöfunartekjur slíkrar fjölskyldu eru jákvæð enda má ætli að hún verji einnig fleiri krónum til kaupa á vörum sem lækka vegna afnáms vörugjalda og lækkunar efra þreps virðisaukaskattsins.   

Rétt er að taka fram að í matvörulið dæma um úgjöld heimila sem fylgja með frumvarpi til breytinga á virðisaukaskatti o.fl. er einungis um að ræða kaup á mat- og drykkjarvöru úr dagvöruverslunum, en ekki kaup á þjónustu veitinga- og kaffihúsa eða mötuneyta. Sú þjónusta, þar með talinn hlutur matvæla í þeirri þjónustu, er metin með annarri vöru og þjónustu í lægra þrepi virðisaukaskatts. Á þetta þarf að horfa þegar verið er að bera saman tölur Hagstofunnar og ráðuneytisins þar sem í tölum Hagstofunnar virðist sem veitingasölu og mötuneytum hafi verið bætt við matvælaflokkinn gagnstætt því sem ráðuneytið gerir. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum