Hoppa yfir valmynd
20. október 2014 Dómsmálaráðuneytið

Auglýsing um kosningarrétt íslenskra ríkisborgara sem búsettir eru erlendis

Þeir íslenskir ríkisborgarar, sem átt hafa lögheimili hér á landi en sest hafa að erlendis, eiga kosningarrétt við alþingiskosningar, forsetakosningar og þjóðaratkvæðagreiðslur á Íslandi í átta ár frá því þeir fluttu lögheimili sitt frá landinu, talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag. Að þessum tíma liðnum fellur kosningarrétturinn niður nema sérstaklega sé sótt um að halda honum.

Því þurfa þeir, sem fluttu af landi brott fyrir 1. desember 2006 og hafa verið búsettir erlendis síðan, að senda umsókn til Þjóðskrár Íslands fyrir 1. desember 2014, til þess að halda kosningarrétti. Kosningarrétturinn gildir þá til 1. desember 2018.

Kosningarréttur miðast við 18 ára aldur. Reglur þessar gilda ekki um kosningar til sveitarstjórna.

Umsókn skal senda Þjóðskrá Íslands og má finna umsóknareyðublöð á vefsíðu stofnunarinnar. Þar má einnig finna frekari upplýsingar um kosningarréttinn.

Sé umsókn fullnægjandi verður umsækjandi tekinn á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem hann átti síðast lögheimili á Íslandi við þær alþingiskosningar, forsetakosningar og þjóðaratkvæðagreiðslur sem fram fara á tímabilinu.

Innanríkisráðuneytið, 16. október 2014.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum