Hoppa yfir valmynd
20. október 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Virkni og þátttaka áhorfenda og listræn samvinna

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra opnaði norrænu ráðstefnuna Arts & Audiences, sem nú stendur yfir í Hörpu og lýkur á morgun 21. október. Ráðstefnan er hluti af formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni.

Illugi Gunnarsson Arts and audiences í Hörpu
Arts and audiences í Hörpu

Yfirskrift ráðstefnunnar er „Virkni og þátttaka áhorfenda og listræn samvinna“ (audience engagement and artistic collaboration) og sjónum beint sérstaklega að stafrænum miðlunar- og sköpunarleiðum.

„Stafræna byltingin hefur nú þegar haft þau áhrif að áhorfendur eru æ oftar í hlutverki meðhöfunda að listaverkum. Í ár verður sjónum Arts & Audiences meðal annars beint að því hvernig norrænar lista- og menningarstofnanir hafa tekist á við þessa áskorun. Við höfum beðið söfn, leikhús, sinfóníuhljómsveitir og hátíðir að deila reynslu sinni með okkur og veita þannig skýrari hugmynd um það hvernig hægt er mæta þessari þróun, hvaða áskoranir, möguleikar og takmarkanir liggja í hinum stafræna heimi og hvaða áhrif þetta hefur á dagskrárgerð, miðlun og samskipti okkar við áhorfendur og unnendur lista og menningar.

Við munum meðal annars kynnast margverðlaunaðri stafrænni tækni Rijksmuseum í Amsterdam, við heyrum hvernig listahátíðir í Edinborg vinna sameiginlega með hugsuðum, sérfræðingum í markaðsmálum og stafrænni tækni til þess að efla borgina enn frekar sem hátíðaborg og ná til mismunandi áhorfendahópa. Coney leikhópurinn frá Bretlandi segir okkur frá aðferðum sínum en hann vinnur samtímis að "analóg" og stafrænum uppsetningum verka, m.a. í samstarfi við Royal Shakespeare Company. Síðast en ekki síst þá fáum við  að heyra hvernig fjölþætt og fjölbreytt reynsla norrænna kollega í menningar- og listageiranum hefur nýst til að ná til nýrra áhorfendahópa og styrkja tengsl við þá sem fyrir eru“, segir Auður Rán Þorgeirsdóttir verkefnisstjóri.

Ráðstefnur með þessu heiti hafa verið haldnar áður í Bergen, Stokkhólmi og Helsinki af Norsk publikumsutvikling í Noregi og CKI (Center for Kunst og Interkultur) í Danmörku.  Mennta- og menningarmálaráðuneytið sér um skipulagningu ráðstefnunnar hér á landi, í samstarfi við Norsk publikumsutvikling og CKI.

Vefsíða ráðstefnunnar

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum