Allir grunnskólar fá sérkennslugögn fyrir einhverf börn
Styrktarfélag barna með einhverfu keypti gögnin fyrir fé sem það safnaði
Styrktarfélag barna með einhverfu afhenti sérkennslugögn að andvirði 4.350.000 kr. í dag í Alþingishúsinu. Einar K. Guðfinnsson forseti Alþingis og Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra tóku við gögnunum.
Sérkennslugögnin voru keypt fyrir féð sem safnaðist í söfnuninni Blár apríl, þann 2. apríl og úr Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst á þessu ári. Söfnunin tókst vonum framar og náist að safna fyrir alla grunnskóla landsins.
Sérkennslugögnin voru keypt fyrir féð sem safnaðist í söfnuninni Blár apríl, þann 2. apríl og úr Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst á þessu ári.
Sérkennslugögnin eru heyrnarhlífar og kúlusessur, tæki sem reynast einhverfum börnum vel í skólastofum. Þá styrktu ABC leikföng málstaðinn enn frekar með því að hafa milligöngu um innflutning á vörunum og TVG Zimsen veitti málefninu lið með rausnarlegu framlagi.