Hoppa yfir valmynd
11. nóvember 2014 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Evrópubandalaginu.


Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópubandalagsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar nr. 989/2014, um úthlutina, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á landbúnaðarvörum, upprunnum í ríkjum Evrópubandalagsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 31. desember 2015:

Vöruliður: Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur  



kg % kr./kg  
0202 Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst 01.01. - 31.12.15 100.000 0 0
0203 Svínakjöt, fryst 01.01. - 31.12.15 200.000 0 0
           
0207 Kjöt af alifuglum, fryst 01.01. - 31.12.15 200.000 0 0
           
ex 0210 Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum (**) 01.01. - 31.12.15 50.000 0 0
           
ex 0406 Ostur og ystingur (**) 01.01. - 31.12.15 20.000 0 0
           
0406 Ostur og ystingur 01.01. - 31.12.15 80.000 0 0
           
1601 Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum 01.01. - 31.12.15 50.000 0 0
           
1602 Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum 01.01. - 31.12.15 50.000 0 0











(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla

 

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar vegna innflutnings á landbúnaðarvörum nr. 448/2012.

 

Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 15:00 miðvikudaginn 19. nóvember 2014.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu,

11. nóvember 2014.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum