Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2014 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Leiðbeiningar um ljósleiðarauppbyggingu opinberra aðila

Póst- og fjarskiptastofnun hefur útbúið leiðbeiningar fyrir sveitarfélög og aðra opinbera aðila vegna uppbyggingar ljósleiðarakerfa. Leiðbeiningarnar fela í sér upplýsingar um regluverk EES-samningsins á sviði samkeppni og ríkisaðstoðar, tæknikröfur, upplýsingar um kröfur í útboðum ásamt fyrirmynd að útboðsgögnum og að samningi við fjarskiptafyrirtæki um tengingu og rekstur ljósleiðarakerfa.

Innanríkisráðuneytið óskaði eftir ofangreindum upplýsingum í þeirri viðleitni að styðja við undirbúning og framkvæmd við uppbyggingu ljósleiðarakerfa á vegum opinberra aðila, einkum sveitarfélaga. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið fjármagnaði verkefnið á grundvelli markmiða byggðaáætlunar 2014-2017 um stuðning við uppbyggingu öflugs gagnanets.

Leiðbeiningunum er ætlað að vera til stuðnings við mat á því hvort verkefni opinberra aðila eða styrkt af þeim teljist til tilkynningarskyldra ríkisstyrkja og hvort styrkurinn teljist samrýmanlegur EES-samningnum með tilliti til  undanþágureglna. Þá var það einnig tilgangur ráðuneytisins að setja fram samræmda lýsingu á tæknilegri tilhögun ljósleiðaraneta sem gæti stuðlað að vandaðri og hagkvæmri uppbyggingu og rekstri þeirra. Enn fremur að auðvelda opinberum aðilum skipulagningu slíkra verkefna með því að útbúa fyrirmyndir að útboðskilmálum auk samtengisamnings vegna reksturs slíkra neta.

Í meginmáli leiðbeininganna er meðal annars fjallað um lagaumhverfi sem skoða þarf vegna ríkisaðstoðar og hvaða skilyrði þarf að uppfylla svo að ríkisaðstoð teljist ekki brjóta í bága við ríkisaðstoðarreglur EES-samningsins. Í viðaukum er síðan að finna gátlista, upplýsingar um stöðu og þróun á íslenskum fjarskiptamarkaði, fyrirmynd af samtengisamningi, almennar upplýsingar um búnað og tæki og ýmsar fleiri hagnýtar upplýsingar.

Póst- og fjarskiptastofnun mun á næstunni boða fundi með fulltrúum landshlutasamtaka og öðrum hagsmunaaðilum þar sem efni leiðbeininganna verður kynnt og rætt.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum