Hoppa yfir valmynd
29. janúar 2015 Innviðaráðuneytið

Umferðarþing og samgönguþing verða haldin fimmtudaginn 19. febrúar

Umferðar- og samgönguþing verða haldin fimmtudaginn 19. febrúar í Hörpu í Reykjavík. Þingin eru skipulögð af innanríkisráðuneytinu, samgönguráði og Samgöngustofu. Umferðarþingið verður haldið milli klukkan 9 og 12.15 en samgönguþingið stendur frá klukkan 13.15 til 17. Vinsamlegast athugið breytta dagsetningu.

Ólöf Nordal innanríkisráðherra mun ávarpa samgönguþingið í upphafi og síðan flytja sérfræðingar erindi á báðum þingunum og gefinn verður góður tími til umræðna og fyrirspurna.

Umferðarþing

Meðal erinda á umferðarþingi má nefna erindi Guðbjargar Kristínar Ludvígsdóttur læknis þar sem m.a. er svarað spurningunni hvort fatlaðir vegfarendur búi við sama öryggi í umferðinni og aðrir. Kristín Sigurðardóttir læknir og Ágúst Mogensen, rannsóknarstjóri umferðarslysa hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa, munu m.a. fjalla um þróun umferðarslysa, áhrifavalda og hvernig orsakir og eðli umferðarslysa hafa breyst. Kynntar verða niðurstöður rannsóknarskýrslu um slys á hjólandi vegfarendum (óvarða vegfarendur) og umferðaröryggisáætlanir sveitarfélaga.

Dagskrá umferðarþings

Samgönguþing

Aðal umfjöllunarefni samgönguþings er samgönguáætlun 2015 til 2026 og munu bæði Ólöf Nordal innanríkisráðherra og Birna Lárusdóttir, formaður samgönguráðs, fjalla um áherslur, stefnu og meginmarkmið áætlunarinnar. Einnig verður fjallað um umhverfismat hennar og fjármögnun verkefna. Í lokin verða pallborðsumræður með þátttöku fulltrúa samgönguráðs.

Dagskrá samgönguþings

Skráning

Skráning er hafin og geta þátttakendur skráð sig á vef Samgöngustofu annað hvort á umferðarþing eða samgönguþing eða bæði þingin. Skráningargjald er kr. 2.500 og er hádegishressing innifalin auk kaffiveitinga.

Dagskrár umferðarþings og samgönguþings eru birtar með fyrirvara um mögulegar breytingar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum