Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2015 Matvælaráðuneytið

Rúmum 175 milljónum úthlutað úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða

Frá Skaftafelli
Frá Skaftafelli

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur staðfest tillögu stjórnar Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða um fyrstu úthlutun úr sjóðnum fyrir árið 2015. Að þessu sinni fengu 50 verkefni styrk fyrir alls 175,7 milljónir króna, til hönnunar og framkvæmda á ferðamannastöðum. 

Hæstu styrkir 12 milljónir króna

Sem fyrr eru verkefnin fjölbreytt og dreifast víða um land. Hæstu styrkina, 12 m.kr., hljóta Vatnajökulsþjóðgarður vegna salernisaðstöðu við Snæfellsskála og Akraneskaupstaður vegna framkvæmda við Breiðina. Snæfellsbær fær 10 m.kr. styrk vegna aðgengis við Bjarnarfoss í Staðarsveit og þrjú verkefni fá styrk á bilinu 8-9,5 m.kr.

Styrkjum má skipta í eftirfarandi flokka:

  • Skipulag og hönnun, 7 styrkir 18,9 m.kr.
  • Framkvæmdir, 24 styrkir 118,6 m.kr.
  • Náttúruvernd og viðhald, 19 styrkir 38,2 m.kr.

Að auki fékk Djúpavogshreppur 9 milljón króna styrk vegna skipulags og framkvæmda við Teigarhorn vegna sérstakra aðstæðna á svæðinu. Fjármagnað er með ónýttum eftirstöðvum eldri styrkja.

Sótt um fyrir 831 milljón

Alls bárust alls 103 umsóknir frá opinberum- og einkaaðilum sem hafa umsjón með ferðamannastöðum víðsvegar um landið. Heildarupphæð styrksumsókna var rúm 831 m.kr. en heildarkostnaður við verkefnin er áætlaður um 2 milljarðar króna.

Verulegur árangur náðst

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða er nú á sínu fjórða starfsári og hefur frá upphafi úthlutað rúmlega 340 styrkjum að upphæð tæplega 1,5 milljarðar króna. Fullyrða má að verulegur árangur hafi þegar náðst af starfi sjóðsins. Víða um land má benda á spennandi verkefni sem orðið hafa að veruleika fyrir tilstuðlan þess fjármagns sem sjóðurinn hefur úthlutað, þótt vissulega sé enn víða þörf á úrbótum.

Næsta úthlutun

Gert er ráð fyrir að næst verði auglýst eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum í haust og þá vegna framkvæmda á árinu 2016.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum