Hoppa yfir valmynd
26. mars 2015 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 23/2015 úrskurður 23. mars 2015

Mál nr. 23/2015                     Millinafn:       Goðdal

 

Hinn 23. mars 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 23/2015 en erindið barst nefndinni 9. mars:

Millinafnið Goðdal er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Goðdal uppfyllir þannig ákvæði  6. gr. fyrrnefndra laga.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Goðdal er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum