Hoppa yfir valmynd
15. apríl 2015 Matvælaráðuneytið

Mat á framkvæmd aflamarks Byggðastofnunar

Byggðastofnun
Byggðastofnun

Aflamark Byggðastofnunar er eitt af þeim úrræðum sem stjórnvöld hafa gripið til í því augnamiði að styrkja brothættar byggðir. Aflamarki var fyrst úthlutað fiskveiðiárið 2013-14 og fékk Byggðastofnun heimild til að úthluta því með samningi við vinnslur og útgerðir, til þriggja ára með möguleika á framlengingu til tveggja ára.  

Nýverið var tekin saman skýrsla um mat á framkvæmd aflamarks, þar sem m.a. er lagt mat á magn landaðs afla, vinnslumagn landvinnslunnar, fjölda ársverka og væntingar heimamanna um framtíð síns byggðarlags.

Vífill Karlsson tók saman skýrsluna að frumkvæði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Almennt eru niðurstöður skýrslunnar jákvæðar; verkefnið hefur farið ágætlega af stað og almennt lofar það góðu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum