Auglýsing um úthlutun aflaheimilda til áframeldis á þorski á fiskveiðiárinu 2015/2016.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra auglýsir eftir umsóknum um úthlutun aflaheimilda til áframeldis á þorski, sbr. reglugerð nr. 736/2009, um úthlutun aflaheimilda í þorski vegna tilrauna við föngun fisks til áframeldis og framkvæmd þess.
Umsóknarfrestur er til 10. ágúst 2015.
Umsóknum skal skila til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík og einnig skal senda umsóknir með rafrænum hætti á netfangið [email protected].
Umsóknir skulu merktar sem “Þorskeldiskvóti”.