Hoppa yfir valmynd
23. júlí 2015 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á WTO tollkvóta 2015-2016

Mánudaginn 20. júlí 2015 rann út umsóknarfrestur um tollkvóta vegna innflutnings á nauta-, svína-,  kinda-, geita- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, smjöri og ostum og eggjum fyrir tímabilið júlí 2015 – júní 2016.

Samtals bárust umsóknir frá tólf aðilum um tollkvótann. Til útboðs kom á tollkvótum á alifuglakjöti, unnum kjötvörum, ostum og eggjum þar sem umsótt magn var meira en það magn sem í boði var.

Samtals bárust  tíu gild tilboð í tollkvótann.

Fjórar umsóknir bárust um innflutning á nautagripakjöti, samtals 65.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 95.000 kg.

Þrjár umsóknir bárust um innflutning á svínakjöti, samtals 40.100 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 64.000 kg.

Tvær umsóknir bárust um innflutning á kinda- eða geitakjöti, samtals 52.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 345.000 kg.

Sex tilboð bárust um innflutning á kjöti af alifuglum, samtals 220.000 kg á meðalverðinu 213 kr./kg.  Hæsta boð var 550 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 59.000 kg á meðalverðinu 335 kr./kg.

Tvær umsóknir bárust um innflutning smjöri, samtals 16.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 53.000 kg.

Sjö tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum, samtals 119.200 kg á meðalverðinu 192 kr./kg.  Hæsta boð var 430 kr./kg en lægsta boð var 20 kr./kg.  Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækjum um innflutning á 119.000 kg á meðalverðinu 192 kr./kg.

Þrjú tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á eggjum, samtals 46.000 kg á meðalverðinu 4 kr./kg.  Hæsta boð var 30 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg.  Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 46.000 kg á meðalverðinu 4 kr./kg.

Átta tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á unnum kjötvörum, samtals 217.000 kg. á meðalverðinu 160 kr./kg. Hæsta boð var 350 kr./kg en lægsta boð var 21 kr./kg.  Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 86.000 kg á meðalverðinu 260 kr./kg.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:

 

Nautgripakjöt fyrir tímabilið júlí 2015 – júní 2016

Magn (kg) Tilboðsgjafi
   15.000 Innnes ehf
   30.000 Íslenskar matvörur efh
   10.000 Nautica ehf
   10.000 Sælkeradreifing ehf

 

Svínakjöt fyrir tímabilið júlí 2015 – júní 2016

Magn (kg) Tilboðsgjafi
  30.000 Íslenskar matvörur ehf
  10.000 Nautica ehf
       100 Rain ehf

 

Kinda- og geitakjöt fyrir tímabilið júlí 2015 – júní 2016

Magn (kg) Tilboðsgjafi
    2.000 Aðföng hf
  50.000 Íslenskar matvörur ehf.

 

Alifuglakjöt fyrir tímabilið júlí 2015 – júní 2016

Magn (kg) Tilboðsgjafi
  14.750 Aðföng hf.
    4.250 Garri ehf
  40.000 Innnes ehf

 

Smjör fyrir tímabilið júlí 2015 – júní 2016

Magn (kg) Tilboðsgjafi
  1.000 Aðföng hf.
15.000 Íslenskar matvörur ehf

 

Ostur fyrir tímabilið júlí 2015 – júní 2016

Magn (kg) Tilboðsgjafi
  10.000 Aðföng hf
    4.200 Garri ehf
  30.000 Innnes ehf
  30.000 Íslenskar matvörur ehf
    7.000 KFC ehf
  35.000 Mjólkursamsalan ehf
    2.800 Nautica ehf

 

Fuglsegg fyrir tímabilið júlí 2015 – júní 2016

Magn (kg) Tilboðsgjafi
  10.000 Íslenskar matvörur  ehf.
  30.000 Nautica ehf
    6.000 Sælkeradreifing ehf

 

Unnar kjötvörur fyrir tímabilið júlí 2015 – júní 2016

Magn (kg) Tilboðsgjafi
  28.286 Aðföng hf
  35.000 Eggert Kristjánsson ehf
    5.000 Innnes ehf
  13.000 Kaupás hf
    4.714 Sælkeradreifing ehf

 


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum