Hoppa yfir valmynd
29. júlí 2015 Atvinnuvegaráðuneytið

Höfuðstöðvar Fiskistofu verða á Akureyri frá 1. janúar 2016

Fiskistofa
Fiskistofa

Höfuðstöðvar Fiskistofu munu flytjast til Akureyrar um næstu áramót og er þetta í samræmi við markmið ríkisstjórnarinnar um að stuðla beri að fjölbreyttum atvinnutækifærum um allt land, m.a. með dreifingu opinberra starfa en á síðustu árum hefur opinberum störfum fjölgað á höfuðborgarsvæðinu en fækkað á landsbyggðinni. 

Með breytingum á lögum um Stjórnarráð Íslands sem samþykktar voru á liðnu þingi hefur verið lögfest heimild fyrir ráðherra til að taka ákvörðun sem þessa. en þar segir: „Ráðherra kveður á um aðsetur stofnunar sem undir hann heyrir, nema á annan veg sé mælt í lögum.“ 

Fiskistofustjóri mun flytjast til Akureyrar og starfa þar ásamt starfsmönnum sem þar eru fyrir, öðrum sem óska eftir flutningi norður á Akureyri og nýjum starfsmönnum sem ráðnir verða. Starfsmenn Fiskistofu sem nú starfa í Hafnarfirði munu hafa val um starfsstöð á Akureyri eða í Hafnarfirði.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta