Hoppa yfir valmynd
19. ágúst 2015 Innviðaráðuneytið

Ísland og rafræn viðskipti í Evrópu

Íslendingar hafa tekið þátt í CEN/WS/BII vinnustofu Staðlasamtaka Evrópu frá stofnun vinnustofunnar árið 2007. Starfsemin hefur skilað fjölda umgjarða um rafræn skjöl, þ.á.m. reikninga, pantanir, kreditnótur og fleiri skjöl sem komin eru í notkun hérlendis. (Sjá tengla neðst)

Skjöl þessi tengjast rafrænum innkaupum, en nú er unnið stíft að viðskiptaferlum rafrænna útboða. Vinnustofan CEN/WS/BII lýkur störfum í ár og skilar afurðum sínum 2. desember næstkomandi.

Þann 17. júní s.l. var stofnuð verkefnisnefnd (PC) innan CEN. Hlaut hún númerið 440 og nefnist því CEN/PC/440. Verkefnisnefnd gefur út staðla og hefur talsvert fastara form á vinnubrögðum en vinnustofa (WS). Aðildarlöndin eru skyldug til að taka upp staðla, sem eru gefnir út af nefndinni.

Stofnfundur verkefnisnefndarinnar var haldinn hjá Dansk Standard í Kaupmannahöfn. Þar mættu um 40 manns frá flestum þjóðlöndum Evrópu. Fulltrúi ICEPRO sótti fundinn fyrir hönd Staðlaráðs Íslands.

Á fundinum voru teknar nokkrar ákvarðanir:

  • Formaður hópsins er Jostein Frömyr, frá EDISYS í Noregi.
  • Ritari hópsins er Hans Henrik Köster, frá Dansk Standard.
  • Viðfangsefni hópsins er rafræn innkaup og byggir á afurðum og reynslu CEN/BII.
  • Rafrænn reikningur verður áfram í umsjá CEN/PC/434.
  • Til hliðsjónar verða gögn PEPPOL, eSens, UN/Cefact, OASIS, o.fl.
  • Unnið verður bæði að stöðlum(EN) og forstöðlum (TS).
  • Ætlunin er að ljúka vinnunni á þrem árum, því þarf að forgangsraða.
  • Hvert land má senda þrjá fulltrúa á vinnufundina, 1-2/ári.

Búið er að skipa sjö vinnuhópa:

  1. Vegvísir (RoadMap)
  2. Rafrænar tilkynningar (e-Notifications)
  3. Rafrænn vörulisti (Product & Price)
  4. Rafræn pöntun (e-Ordering)
  5. Afhending (e-Fulfillment)
  6. Rafræn útboð (e-Tendering)
  7. Orðasafn.

Reynt var að áætla vinnuframlagið miðað við reynslu CEN/BII.

Vinna ritstjóra er áætlaður 4-6 mánuðir á ári, en vinna nefndarmanns um einn mannmánuður á ári. Það væri Íslandi augljóslega í hag að eiga ritara í hópnum, eins og verið hefur í CEN/BII. Vinnan er ólaunuð, svo að fjárframlög fyrir ritarann og vinnuframlög nefndarmanna eru nauðsynleg.

Vegvísir með markmiðum og umfangi verksins verður sendur tækniráði CEN 1. september.

Næsti fundur verður í Brussel 1. desember. Kynnt verður niðurstaða tækniráðsins (CEN/BT) og framhald verksins.

Nokkrir tenglar:

Sjá 2010 útgáfu CEN/BII1: http://www.icepro.is/Pages/NewsInfo.aspx?id=111

og 2013 útgáfu CEN/BII2: http://www.ut.is/rafraen-vidskipti/fraedsla/frettir/nr/7479

CEN/BII3 vinnustofan skilar verki sínu 2. desember í ár, sjá:http://www.cenbii.eu/

Nokkrar skammstafanir:

CEN = Comité européen de normalisation (Staðlasamtök Evrópu) 
BII = Business Interoperability Interfaces (sjá: http://www.cenbii.eu/)

EN = European Norm (staðall) 
TS = Technical Specification (tækniforskrift)
TR = Technical Report (tækniskýrsla)


PC = Project Committee (verkefnisnefnd)
TC = Technical Committee (tækninefnd)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum