Fjármagn til uppbyggingar á ferðamannastöðum tryggt
Á undanförnum tveimur árum hefur 1.700 m.kr. verið varið til verndar og uppbyggingar á ferðamannastöðum í gegnum Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Aldrei hafa jafn miklir fjármunir verið settir í þennan málaflokk. Tæpar 500 m.kr. hafa komið frá gistináttaskatti en 1.230 m.kr. hafa komið í gegnum sérstakar úthlutanir ríkisstjórnarinnar árin 2014 og 2015.
Við undirbúning fjárlagafrumvarpsins varð ljóst að umtalsverðir fjármunir, eða um 1.200 m.kr., liggja enn óhreyfðir í Framkvæmdasjóðnum og hefur ekki verið ráðstafað í þau verkefni sem úthlutað hefur verið til. Unnið hefur verið að því í sumar að kortleggja ástæður þess og eru þar ýmsar skýringar á. Þar má nefna að skipulagsvinnu er ólokið, undirbúningur og hönnun ýmis konar hefur tekið lengri tíma, ágreiningur um eignarhald svæða hefur tafið framkvæmdir o.s.frv. Meta þarf í kjölfarið hversu háum fjárhæðum stjórn Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða geti endurúthlutað þar sem ekki sé lengur þörf fyrir fjármunina í þau verkefni sem þeim var upprunalega úthlutað til.
Með stórauknum framlögum til þessa málaflokks á síðustu tveimur árum hafa stjórnvöld sýnt skýran vilja sinn til þess að tryggja uppbyggingu nauðsynlegra innviða á ferðamannastöðum landsins. Staða Framkvæmdasjóðsins sýnir hins vegar glögglega að skortur á fjármagni er ekki stærsta hindrunin í uppbyggingunni þar sem vel yfir helmingi verkefna sem úthlutað hefur verið til er enn ólokið.
Ljóst er að bæta þarf úr skipulagi og framkvæmd allra þeirra aðila sem að þessu koma til þess að tryggt verði að þeir fjármunir sem ráðstafað hefur verið skili sér í bættri aðstöðu. Unnið er að nákvæmri greiningu á stöðu verkefnanna og verða ákvarðanir um frekari framlög til Framkvæmdasjóðsins teknar við meðferð fjárlagafrumvarpsins á Alþingi þegar þær upplýsingar liggja fyrir.