Hoppa yfir valmynd
15. september 2015 Forsætisráðuneytið

Samráð um tillögu að breytingum á lögum um menningarminjar

Forsætisráðherra hyggst leggja fram frumvarp til laga um breytingar á lögum um menningarminjar, nr. 80/2012, á yfirstandandi þingi. Meðfylgjandi drög eru afrakstur vinnu forsætisráðuneytisins undanfarna mánuði þar sem farið hefur verið yfir athugasemdir sem ráðuneytinu hafa borist um ákvæði laga um menningarminjar. Að þessu sinni hyggst ráðherra leggja til afmarkaðar tillögur til breytinga á lögunum en stefna að víðtækari endurskoðun þeirra á næstu misserum.

Öllum sem áhuga hafa er boðið að senda inn athugasemdir við frumvarpsdrögin í netfangið [email protected]. Æskilegt er að þær berist fyrir 1. október næstkomandi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum