Hoppa yfir valmynd
18. september 2015 Atvinnuvegaráðuneytið

Nýr samningur við Grænland um skiptingu á gullkarfa

Golden redfish/Gullkarfi
Golden redfish/Gullkarfi

Undirritaður hefur verið tvíhliða samningur milli Íslands og Grænlands um gullkarfa. Samningurinn er til þriggja ára og felur í sér skiptinguna 90% fyrir Ísland og 10% fyrir Grænland. Auk þess er gert ráð fyrir 350 tonna afla annarra þjóða á hverju ári samningsins.

Í samningnum er ákveðin nýtingaráætlun sem felur í sér aflareglu, sem er sú hin sama og íslensk stjórnvöld samþykktu á síðasta ári eftir að Alþjóðahafrannsóknaráðið yfirfór hana með tilliti til hámarks langtíma afraksturs og alþjóðlegra varúðarsjónarmiða.

Jafnframt var gerður samningur um landanir grænlenskra skipa í íslenskum höfnum fyrir árið 2015. Geta grænlensk skip á þessu ári landað allt að 50 þúsund tonnum af makríl og 15 þúsund tonnum af norsk-íslenskri síld.

Góð samskipti Íslands og Grænlands á sjávarútvegssviði eru afar þýðingarmikil báðum þjóðum. Þessi samningur mun styrkja enn frekar samstarf þessara þjóða og tryggja ábyrgar veiðar úr þessum sameiginlega stofni þjóðanna.

Formaður samninganefndar Grænlands var Emanuel Rosing skrifstofustjóri í grænlenska sjávarútvegsráðuneytinu og formaður þeirrar íslensku var Jóhann Guðmundsson skrifstofustjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta