Hoppa yfir valmynd
24. september 2015 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra tekur þátt í leiðtogafundi um ný sjálfbær þróunarmarkmið og allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra mun á morgun taka þátt í leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna í New York, þar sem til stendur að samþykkja ný sjálfbær þróunarmarkmið, alls sautján talsins, ásamt pólitískri yfirlýsingu og áætlun um framkvæmd og eftirfylgni. Þá mun forsætisráðherra taka þátt í leiðtogafundi um jafnréttismál og valdeflingu kvenna, sem boðað er til í tilefni af 20 ára afmæli Peking yfirlýsingar og framkvæmdaáætlunar.

Forsætisráðherra mun jafnframt taka þátt í störfum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna þar sem leiðtogar aðildarríkja koma saman. Þar mun hann m.a. taka þátt í sérstökum umræðum um málefni farenda og flóttafólks, um ójöfnuð og jafnrétti og um orkumál. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum