Hoppa yfir valmynd
6. október 2015 Matvælaráðuneytið

Vegvísir í ferðaþjónustu – öflugri atvinnugrein

Vegvisir
Vegvisir

Í dag kynntu Ragnheiður Elín Árnadóttir ráðherra ferðamála og Grímur Sæmundsen formaður Samtaka ferðaþjónustunnar nýja ferðamálastefnu. 

Undanfarin ár hefur fjölgun ferðamanna verið langt umfram spár og væntingar eru um áframhaldandi vöxt greinarinnar. Til að stuðla að farsælli þróun í ferðaþjónustu á Íslandi tóku iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sem jafnframt er ráðherra ferðamála, og Samtök ferðaþjónustunnar höndum saman um mótun stefnu í ferðaþjónustu til lengri tíma með áherslu á sjálfbæra þróun. Settur var á laggirnar stýrihópur og verkefnahópur sem unnu að gagnaöflun, greindu stöðuna og kynntu sér fyrirmyndir erlendis frá. Auk þess var fundað með um 1000 manns vítt og breitt um landið.

Mikil sóknarfæri

Mikið er undir þar sem í ferðaþjónustu og uppbyggingu hennar felast mikil sóknarfæri samfélagsins til aukinnar hagsældar og jákvæðrar byggðaþróunar. Ferðaþjónustan hefur átt stóran þátt í þeim hagvexti sem verið hefur á Íslandi undanfarin ár og á sama tíma skapað þúsundir nýrra starfa. Áætlað er að gjaldeyristekjur af greininni í heild muni aukast verulega; fari úr 350 milljörðum árið 2015 í meira en 620 milljarða 2020 og líklega yfir 1.000 milljarða árið 2030. Þetta eru gríðarlega háar fjárhæðir í ljósi þess að áætlaðar heildargjaldeyristekjur þjóðarinnar árið 2015 verða um 1.140 milljarðar króna.

Styrkja þarf undirstöður

Vinnan við stefnumótunina leiddi fljótt í ljós hversu veikar undirstöðurnar eru fyrir mótun framtíðarstefnu í ferðaþjónustu á Íslandi. Áreiðanleg og alþjóðlega samanburðarhæf gögn og mælikvarða bráðvantar, ábyrgð er víða óljós, lagaumgjörðin er flókin og skipulag greinarinnar óskýrt. Niðurstaða stýrihópsins var því að horfa sérstaklega til forgangsverkefna næstu fimm ára, en þau snúa að því að leggja traustan grunn fyrir farsæla og sjálfbæra þróun ferðaþjónustunnar til framtíðar. Á næstu fimm árum verður fyrst og fremst lögð áhersla á verkefni sem stuðla að:

  • Samhæfðri stýringu ferðamála
  • Jákvæðri upplifun ferðamanna
  • Áreiðanlegum gögnum
  • Náttúruvernd
  • Hæfni og gæðum
  • Aukinni arðsemi
  • Dreifingu ferðamanna

Stjórnstöð ferðamála

Undirritun samnings um Stjórnstöð ferðamálaÁ grundvelli samkomulags milli ríkisstjórnar Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka ferðaþjónustunnar sem undirritað var í dag (sjá meðfylgjandi) verður sett á laggirnar Stjórnstöð ferðamála sem mun starfa til ársloka 2020. Í henni sitja



  • Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, formaður
  • Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra
  • Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra
  • Ólöf Nordal, innanríkisráðherra
  • Grímur Sæmundsen, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar
  • Þórir Garðarsson, varaformaður Samtaka ferðaþjónustunnar
  • Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
  • Björgólfur Jóhannsson, formaður Samtaka atvinnulífsins
  • Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga 
  • Sigrún Blöndal, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs

Stjórnstöðin sér til þess að næstu fimm ár verði nýtt til að ráðast í þau verkefni sem nauðsynleg eru til að leggja þann trausta grunn sem kallað er eftir í íslenskri ferðaþjónustu. Hlutverk hennar er að samhæfa aðgerðir og útfæra leiðir í samvinnu við stjórnsýslu, sveitarfélög, stoðkerfi greinarinnar vítt og breitt um landið, greinina sjálfa og aðra hagsmunaaðila.

Hörður Þórhallsson veitir Stjórnstöð ferðamála forystu

Hörður Þórhallsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála og tekur hann til starfa 1. nóvember. Hörður er með mastersgráðu í rekstrarverkfræði frá háskólanum Karlsruhe í Þýskalandi. Hann hóf starfsferil sinn árið 1996 sem rekstrarráðgjafi hjá VSÓ Ráðgjöf og var árið 2000 ráðinn til lyfjafyrirtækisins Delta, sem síðar varð Actavis. Þar leiddi hann m.a. uppbyggingu Actavís í Asíu, Eyjaálfu, Afríku og á Miðausturlöndum. Síðast gegndi hann stöðu framkvæmdastjóra Actavis yfir Asíu, Eyjaálfu og Afríku með starfsstöð og búsetu í Singapúr.

Traustur grunnur

Tækifærin eru svo sannarlega fyrir hendi en það skiptir miklu máli að halda rétt á spilunum. Með markvissri stjórn, heildstæðri nálgun, faglegum úrbótum, fjárfestingu í innviðum og sameinuðum kröftum getur ferðaþjónustan haldið áfram sókn sinni á traustum grunni í góðri sátt við samfélag, náttúru og aðrar atvinnugreinar.

Undirritun samnings um Stjórnstöð ferðamála

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum