Hoppa yfir valmynd
9. október 2015 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs janúar-ágúst 2015

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir janúar – ágúst 2015 liggur nú fyrir og gefur upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. 

Tekjujöfnuðurinn var lítillega jákvæður sem er betri staða en gert hafði verið ráð fyrir. Innheimtar tekjur jukust um 24,4 ma.kr. milli ára en móti jukust greidd gjöld um 37,3 ma.kr. Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 24,9 ma.kr. samanborið við jákvætt handbært fé upp á 13,7 ma.kr. 2014. Þessi viðsnúningur milli ára skýrist að stórum hluta með því að leiðrétting verðtryggðra húsnæðislána sem gjaldfærð var á árinu 2014 kom til greiðslu nú í byrjun árs 2015. Þetta hefur eingöngu áhrif á sjóðshreyfingar en ekki rekstrarstöðu ársins 2015.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum