Hoppa yfir valmynd
9. október 2015 Matvælaráðuneytið

Styrkir til áhugahópa og faglegs starfs

Samkvæmt ákvörðun Alþingis úthluta atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti, umhverfis- og auðlindaráðuneyti og velferðarráðuneyti styrkjum af safnliðum ráðuneytanna. 

Styrkir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis verða veittir til félaga, samtaka, fyrirtækja eða einstaklinga eftir því sem við á, til að styðja við áhugahópa og faglegt starf á verkefnasviði ráðuneytisins. Ekki eru veittir styrkir til ríkisstofnana eða sveitarfélaga.

Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér vel hvaða ráðuneyti ber ábyrgð á þeim málaflokki sem verkefni umsækjanda um styrk fellur undir. Verkefni eru einungis styrkhæf í einu ráðuneyti og áskilja ráðuneyti sér rétt til að færa umsóknir á milli ráðuneyta falli verkefni betur að málaflokki í öðru ráðuneyti.

Hafi umsækjandi áður fengið styrk til verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd fyrra verkefnis og ráðstöfun styrkfjárins til að ný umsókn komi til greina eða eins og kveðið er á um í samkomulagi vegna fyrri styrkveitinga.

Við mat á umsóknum er ráðuneytinu heimilt að leita umsagnar fagaðila, gerist þess þörf.

Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir eigi síðar en 31. janúar 2016.

 

Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á

umsóknavef Stjórnarráðsins.

 

Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjanda og verður lykilorð sent viðkomandi á netfang sem hann gefur upp við nýskráningu.

Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar.

Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti undir flipanum Eyðublöð.

 

Nánari upplýsingar veitir Hulda Lilliendahl ([email protected]).


Umsóknarfrestur rennur út þriðjudaginn

10. nóvember kl. 16.00


 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum