Hoppa yfir valmynd
12. október 2015 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Gunnar H. Hall lætur af embætti fjársýslustjóra

Gunnar H. Hall fjársýslustjóri lætur af embætti um næstu áramót og kemur til starfa í fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Gunnar var skipaður ríkisbókari frá 1. janúar 1995. Árið 2002 voru samþykkt ný lög sem fólu meðal annars í sér að Ríkisbókhald tók yfir verkefni embættis Ríkisféhirðis og var þá nafni stofnunarinnar breytt í Fjársýslu ríkisins. Gunnar hefur því stýrt starfsemi stofnunarinnar samfleytt í 21 ár með farsælum hætti. Í byrjun næsta árs kemur hann til starfa í fjármála- og efnahagsráðuneyti og vinnur þar með teymi ráðuneytisins að innleiðingu væntanlegra laga um opinber fjármál, samkvæmt frumvarpi þar um, auk þess að sinna öðrum verkefnum.

Embætti fjársýslustjóra verður auglýst laust til umsóknar næstkomandi fimmtudag. Gert er ráð fyrir að fjármála- og efnahagsráðherra skipi í embættið til fimm ára frá 1. janúar 2016.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum