Áhrif bættra mælikvarða velferðar á stefnumótun: OECD - bein útsending
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, tekur í dag þátt í pallborðsumræðum á heimsfundi Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) í Guadalajara í Mexíkó undir yfirskriftinni Transforming policy and behaviour to improve lives: it's already happening.Pallborðsumræðurnar eru hluti umfjöllunar OECD um áhrif bættra mælikvarða á velferð á stefnumótun stjórnvalda.
Umræðurnar hefjast klukkan 16 að íslenskum tíma og fylgjast má með í beinni útsendingu. (smella þarf á "video" í valmynd).