Hoppa yfir valmynd
16. október 2015 Dómsmálaráðuneytið

Málstofa um mútur í alþjóðlegum viðskiptum

Málstofa um baráttuna gegn mútum í alþjóðlegum viðskiptum verður haldin í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands þann 29. október næstkomandi frá klukkan 9-11, á vegum innanríkisráðuneytisins. Aðalgestur málstofunnar verður Drago Kos, formaður vinnuhóps OECD, sem fylgir eftir innleiðingu alþjóðlegs sáttmála á þessu sviði gagnvart Íslandi og fjörutíu öðrum ríkjum.

Meginmarkmið sáttmálans er að aðildarríkin geri það refsivert að bera mútur á erlenda opinbera starfsmenn og fylgi því eftir með fullnægjandi hætti. Erlend mútubrot eru vandamál í alþjóðlegum viðskiptum, þau skekkja samkeppnisstöðu fyrirtækja, eru skaðleg góðum stjórnarháttum og grafa undan efnahagsþróun.

Fulltrúar atvinnulífs og stjórnvalda taka þátt í pallborðsumræðum ásamt Drago Kos að loknu erindi hans auk þess sem gestir geta borið fram spurningar úr sal.

Dagskrá:

  1. Fulltrúi innanríkisráðuneytisins setur fundinn.

  2. Kynning á efni málstofunnar. Sveinn Helgason, formaður stýrihóps innanríkisráðuneytisins um eftirfylgni vegna innleiðingar alþjóðlegra samninga gegn spillingu og mútum.

  3. Erindi Drago Kos – formanns vinnuhóps OECD um erlend mútubrot – Working Group on Bribery.

  4. Pallborð með þátttöku fulltrúa atvinnulífs og stjórnvalda.

  5. Almennar umræður – spurningar úr sal.

Þátttaka tilkynnist til Sveins Helgasonar [email protected] en einnig er hægt að skrá sig frá klukkan 8:30 í anddyri Þjóðminjasafnsins á sjálfan fundardaginn. Málstofan er öllum opin.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum