Hoppa yfir valmynd
22. október 2015 Utanríkisráðuneytið

Undirrituð bókun Evrópuráðs um vígamenn

Samningur undirritaður
Pétur G. Thorsteinsson undirritar bókunina

Ísland undirritaði í Lettlandi í dag viðbótarbókun varðandi erlenda vígamenn hryðjuverkasamtaka. Bókunin er við samning Evrópuráðsins um að koma í veg fyrir hryðjuverk. Hún felur í sér ákvæði sem banna ferðir einstaklinga erlendis sem hafa hryðjuverkastarfsemi að markmiði, svo og fjármögnun slíkra ferða og skipulagningu. Ennfremur er þátttaka bönnuð í hryðjuverkasamtökum og að fá þjálfun til hryðjuverka. 


Bókunin útfærir ákvörðun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um aðgerðir gegn erlendum bardagamönnum hryðjuverkasamtaka. 

Nánari upplýsingar má finna á vef Evrópuráðsins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum