Ráðherra og SAF kynna nýjan Vegvísi í ferðaþjónustu á fundum hringinn í kringum landið
Á næstu dögum og vikum munu Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Grímur Sæmundsen formaður SAF og Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri SAF gera víðreist um landið og kynna á opnum fundum nýja Vegvísinn, stefnumörkun í ferðaþjónustu.
Á fundunum munu ráðherra og fosvarsmenn SAF fara yfir helstu atriði nýju ferðamálastefnunnar og svo taka við líflegar umræður og skoðanaskipti.
Fundirnir eru að sjálfsögðu öllum opnir og eru jafnt aðilar í ferðaþjónustu sem og almennir borgarar hvattir til að mæta. Heitt á könnunni og heit súpa á hádegisfundunum!
Nánari upplýsingar má finna á ferdamalastefna.is
- Hvolsvöllur þriðjudaginn 3. nóvember kl. 17 á Hótel Hvolsvelli
- Húsavík miðvikudaginn 4. nóvember kl. 12 í Veitingahúsinu Salka
- Akureyri miðvikudaginn 4. nóvember kl. 17 í Menningarhúsinu Hofi
- Grundarfjörður mánudaginn 9. nóvember kl. 12 í Samkomuhúsinu
- Borgarnes mánudaginn 9. nóvember kl. 16:30 á Hótel Borgarnesi
- Reykjanesbær mánudaginn 16. nóvember kl. 20 í Hljómahöllinni
- Reyðarfjörður miðvikudaginn 25. nóvember kl. 12 á Hótel Austur
- Egilsstaðir miðvikudaginn 25. nóvember kl. 17 í Valaskjálf
- Ísafjörður mánudaginn 30. nóvember kl. 12 í Edinborgarhúsinu
- Reykjavík miðvikudaginn 9. desember kl. 17:15 á Fosshótel Reykjavík
- Blönduós miðvikudaginn 9. desember kl. 12 á Eyvindarstofu
- Höfn í Hornafirði miðvikudaginn 13. janúar 2016 kl. 12 á Hótel Höfn