Hoppa yfir valmynd
29. október 2015 Heilbrigðisráðuneytið

Drög að reglugerð um lyfjaauglýsingar til umsagnar

Lyf
Lyf

Velferðarráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að nýrri reglugerð um lyfjaauglýsingar. Reglugerðardrögin taka meðal annars á þeirri breytingu sem verður 1. nóvember samkvæmt breytingu á lyfjalögum nr. 93/1994 sem samþykkt var á Alþingi 30. júní síðastliðinn og heimilar auglýsingar lausasölulyfja í sjónvarpi. Reglugerðin mun leysa af hólmi gildandi reglugerð um lyfjaauglýsingar nr. 328/1995.

Frestur til að skila inn umsögnum rennur út 10. nóvember næstkomandi.

Umsagnir skal senda á netfangið [email protected] og skrifa í efnislínu: Umsögn um reglugerð um lyfjaauglýsingar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum