Hoppa yfir valmynd
10. nóvember 2015 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Umsækjendur um stöðu skólameistara Verkmenntaskólans á Akureyri

Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust sex umsóknir um stöðuna.

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara Verkmenntaskólans á Akureyri rann út 3. nóvember sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust sex umsóknir um stöðuna. Umsækjendur eru:

Benedikt Barðason,
Bjargey Gígja Gísladóttir,
Hamidreza Jamshidnia,
Hermann Jón Tómasson,
Laufey Petrea Magnúsdóttir og
Sigríður Huld Jónsdóttir.

Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. janúar 2016, að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum