Hoppa yfir valmynd
12. nóvember 2015 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra ávarpar leiðtogafund um fólksflutninga í Valletta

Í dag lauk veggja daga leiðtogafundi um fólksflutningavandann, sem haldinn var í Valletta á Möltu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, tók þátt í fundinum ásamt um 60 öðrum leiðtogum Evrópu- og Afríkuríkja. Til fundar leiðtoganna var boðað vegna alvarleika vandans og nauðsynjar þess að leitast við að tryggja heildstæða nálgun gagnvart þeim áskorunum sem í fólksflutningunum felast.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir vandann gríðarlegan: „Fátt bendir til að lát verði á þessu ástandi, nokkur þeirra ríkja sem undir hvað mestum þunga eru hafa brugðið á það ráð að taka upp landamæraeftirlit að nýju þrátt fyrir aðild að Schengen. Því olli það vissum vonbrigðum að ekki hafi komið fram á fundinum meira af raunhæfum lausnum á vandanum eins og hann er núna, þó að margar ágætar tillögur hafi komið þar fram um hvernig stemma megi stigu við vandanum til framtíðar.“

Í ávarpi sínu lagði forsætisráðherra áherslu á nauðsyn þess að ræða til hlítar rót vandans, m.a. þær aðstæður innan upprunalands sem hvetja til fólksflutninga, aðdráttarafl áfangastaðar og að hjálpa þeim sem mest þurfa á því að halda. Þá kvað hann nauðsynlegt að ríki sendu frá sér rétt skilaboð en hann væri ekki viss um að það hafi alltaf verið gert. Þá vakti hann athygli á mikilvægi uppbyggingar verkefna á sviði hreinnar orku og jarðvarma sem byggt gætu undir efnahagslega þróun og sjálfbærni Afríkjuríkja og benti á að Íslendingar tækju þegar þátt í slíkum verkefnum.

Á fundinum var fjallað um ýmsar hliðar og áskoranir sem fylgja fólksflutningum m.a. bæði efnahagslegar og pólitískar. Fjallað var um nauðsyn þess að takast á við rót vandans og rætt um nauðsyn þess að greina á milli þeirra er þurfa alþjóðlega vernd og þeirra sem þurfa hana ekki og að berjast af auknum þunga gegn smygli, misneytingu og mansali.

Leiðtogarnir samþykktu pólitíska yfirlýsingu og framkvæmdaáætlun sem rammar inn helstu áherslur fundarins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum