Hoppa yfir valmynd
13. nóvember 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Jafnréttisþing 2015: Kynlegar myndir – jafnrétti á opinberum vettvangi

Félags- og húsnæðismálaráðherra og Jafnréttisráð boða til jafnréttisþings í samræmi við lög nr. 10/2008, um jafnan rétt og jafna stöðu kvenna og karla. Jafnréttisþing er að þessu sinni haldið í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið og fjölmiðlanefnd.

Staður og stund: Þingið fer fram á Hilton Reykjavík Nordica 25. nóvember frá kl. 8:30-17:15 og er öllum opið. Aðgangur er ókeypis en boðið verður upp á hádegsiverð gegn vægu gjaldi.

Skráning: http://asp.artegis.com/jafnretti

Á jafnréttisþingi leggur félags- og húsnæðismálaráðherra fram skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála 2013–2015. Hlutverk þingsins er að efna til umræðu milli stjórnvalda og þjóðar um málefni kynjajafnréttis og gefa áhugasömum kost á að hafa áhrif á stefnumótun í jafnréttismálum. Að þessu sinni verður lögð áhersla á stöðu kvenna og kynjaðar birtingarmyndir á opinberum vettvangi. Markmiðið er að varpa ljósi á ólíka stöðu kvenna og karla í fjölmiðlum og kvikmyndum annars vegar og hins vegar að fjalla um umfang og eðli kynbundinnar hatursorðræðu. Jafnréttisþingið er haldið á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi og markar upphaf 16 daga átaksins sem lýkur 10. desember á mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna.Aðalfyrirlesarar þingsins verða Maria Edström, lektor við Fjölmiðladeild Háskólans í Gautaborg og verkefnisstjóri Nordicom–verkefnis Norrænu ráðherranefndarinnar um aukið jafnrétti í fjölmiðlum, og Anna Serner, forstöðumaður sænsku kvikmyndamiðstöðvarinnar. Kynntar verða niðurstöður nýrra rannsókna um hlut kvenna og karla í íslenskum fjölmiðlum. 

Fjölmiðlaviðurkenning Jafnréttisráðs verður veitt að lokinni dagskrá þingsins.

Þingstjóri: Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri

DAGSKRÁ

08:30 - 09:00 
Skráning og afhending ráðstefnugagna
09:00 - 09:10
09:00 – 09:10 Fanný Gunnarsdóttir, formaður Jafnréttisráðs. Ávarp og setning Jafnréttisþings 2015.
09:10 - 09:30   Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra. Skýrsla félags- og húsnæðismálaráðherra um stöðu og þróun jafnréttismála 2013 – 2015. 
09:30 - 09:45   Rósa Guðrún Erlingsdóttir, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu. Viðmælendur í fréttum og völdum umræðuþáttum fjölmiðla – niðurstöður könnunar velferðarráðuneytisins og CreditInfo. 
09:45 - 10.10   Guðný Gústafsdóttir, doktorsnemi og stundakennari við Háskóla Íslands. Kjarnmestu konur í heimi. 
10:10 - 10.30   Kaffi 
10:30 - 11:00  Maria Edström, lektor við rannsóknarstofnun um fjölmiðla og upplýsingamál við Háskólann í Gautaborg. Gender Equality in Media in a Nordic Perspective – how to make Change. 
11:00 - 11:30  

Viðbrögð og umræður:

  • Eva María Jónsdóttir, fjölmiðlakona og miðaldafræðingur. 
  • Kolbeinn Tumi Daðason, aðstoðarritstjóri á 365 miðlum.
  11:30 – 11:45 Uppistand. Snjólaug Lúðvíksdóttir uppistandari. Vertu ung, vertu sæt! Um birtingarmyndir kvenna í fjölmiðlum. 
  11:45 – 12:45 Hádegismatur 
 

12:45 – 14:30 MÁLSTOFUR

  • Kyn og fjölmiðlar 
  • Kyn og kvikmyndir 
  • Kyn og hatursorðræða
 14:30 - 14:50  Kaffi 
14:50 - 15:10   Málstofustjórar gera grein fyrir umræðum úr málstofum. 
15:10 - 15:40   Anna Serner, forstöðumaður sænsku kvikmyndamiðstöðvarinnar. Gender Equality in Film Funding in a Nordic Perspective – how to ensure Fairness and Equality when Funding Film Productions. 
 15:40 - 16:10

 Viðbrögð og umræður:

Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Hilmar Sigurðsson, formaður Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. 
 16:10 - 16:25  Uppistand. Snjólaug Lúðvíksdóttir uppistandari. Vertu ung, vertu sæt! Um birtingarmyndir kvenna í kvikmyndum. 
 16:25 - 16:45  Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra. Ávarp og slit. 
 16:45 - 17:15  Fjölmiðlaviðurkenning Jafnréttisráðs 2015 í Vox Home. 
17:15   Móttaka 

Málstofur

Málstofa 1 Kyn og fjölmiðlar

  • Sigrún Stefánsdóttir, forseti hug og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri og doktor í fjölmiðlafræði. Svona eru konur.
  • Valgerður Anna Jóhannsdóttir, aðjúnkt í blaða- og fréttamennsku við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Ísland í alþjóðlegri fjölmiðlavöktun.
  • Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður Félags kvenna í atvinnurekstri. Þátttakendur eða þiggjendur. Endurspegla fjölmiðlar samfélagið? Fjölmiðlaverkefni FKA 2013 – 2017.

Málstofustjóri: Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar.

Málstofa 2 Kyn og kvikmyndir

  • Margrét Örnólfsdóttir, handritshöfundur og formaður Félags leikskálda og handritshöfunda. Erum við kynóð?
  • Hilmar Oddsson, kvikmyndaframleiðandi og rektor Kvikmyndaskóla Íslands. Hvernig nýtum við skóla sem jafnréttistæki? – Kvikmyndanám og konur.
  • Skúli Friðrik Malmqvist, kvikmyndaframleiðandi.

Málstofustjóri: Baltasar Kormákur kvikmyndaframleiðandi.

Málstofa 3 Kyn og hatursorðræða

  • Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands. Hvað má gera til að vinna gegn hatursorðræðu? – Ábendingar til framtíðar.
  • María Rún Bjarnadóttir, lögfræðingur og doktorsnemi við Háskólann í Sussex. Hatursorðræða: álitaefni um ábyrgð.
  • Vilhjálmur Reyr Þórhallsson, yfirlögfræðingur lögfræðisviðs Embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum. Hatursorðræða frá sjónarhóli lögreglu.

Málstofustjóri: Þórður Kristinsson, kennari við Kvennaskólann í Reykjavík.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum