Hoppa yfir valmynd
14. nóvember 2015 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra sendir samúðarkveðjur vegna hryðjuverkaárásanna í París

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, hefur sent Manuel Valls, forsætisráðherra Frakklands, samúðarkveðjur frá ríkisstjórninni og íslensku þjóðinni vegna hryðjuverkaárásanna í París í gær.

„Árásirnar eru skelfilegar og gróf atlaga að grundvallargildum okkar og okkur öllum þungt áfall. Ég votta þeim sem sárt eiga um að binda mína dýpstu samúð.“

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum