Hoppa yfir valmynd
15. febrúar 2016 Utanríkisráðuneytið

Heimsókn utanríkisráðherra til Miðausturlanda

Gunnar Bragi og Netanyahu - mynd

Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, hóf í gær heimsókn sína til Miðausturlanda, en ráðherra heimsækir Ísrael, Palestínu og Jórdaníu í vikunni. Í dag fundaði ráðherra með Benjamin Netanyahu, forsætis- og utanríkisráðherra Ísraels. Á fundinum fór Gunnar Bragi meðal annars yfir afstöðu Íslands til deilu Ísraels og Palestínu og ítrekaði mikilvægi þess að viðræður yrðu hafnar að nýju með tveggja ríkja lausn að leiðarljósi. Átaldi ráðherra landtökubyggðir Ísraela og fordæmdi árásir og mannfall óbreyttra borgara á báða vegu..

Ráðherrarnir ræddu einnig tvíhliða samskipti ríkjanna og gagnkvæman vilja til að styrkja þau frekar, m.a. með gerð loftferðasamnings, fjárfestingarsamnings og tvísköttunarsamnings og samstarfi á sviði nýsköpunar, en Ísraelar standa þar mjög framarlega.

Staða mála í Miðausturlöndum, þ.m.t. ástandið í Sýrlandi, var sömuleiðis til umfjöllunar, auk þess sem Gunnar Bragi varpaði ljósi á stöðu efnahagsmála á Íslandi og ræddi öryggishorfur í Evrópu.

Utanríkisráðherra fundaði einnig með Tzipi Hotovely, varautanríkisráðherra Ísrael, þar sem staðan í deilu Ísraels og Palestínu og hugsanleg úrræði til lausnar deilunni voru rædd í þaula.

Ráðherra átti þá fund með Yair Lapid, einum af leiðtogum stjórnarandstöðunnar og formanni Miðjuflokksins í Ísrael. Ræddu þeir sömuleiðis gagnkvæman vilja til að styrkja samskipti Ísraels og Íslands og stöðuna fyrir botni Miðjarðarhafs. Að endingu átti utanríkisráðherra fund með Nikolay Mladenov, sem er sérstakur erindreki aðalritara Sameinuðu þjóðanna í friðarferlinu.

Gunnar Bragi heimsótti Minnisvarðann vegna Helfararinnar og lagði blómsveig til minningar um fórnarlömb, en um 6 milljónir Gyðinga týndu lífi í Helförinni.

Á morgun heldur utanríkisráðherra til Palestínu og mun eiga fundi með ráðamönnum í Ramallah, þ.m.t. forsætisráðherra landsins, og kynna sér verkefni sem Ísland styður á Vesturbakkanum. Einnig mun ráðherra eiga fundi með yfirmönnum stofnana Sameinuðu þjóðanna á svæðinu; OCHA og UNWRA. Síðar í vikunni heldur utanríkisráðherra til Jórdaníu þar sem hann mun kynna sér aðstæður Zaatari flóttamannabúðunum og funda með Nasser Judeh, utanríkisráðherra landsins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum