Hoppa yfir valmynd
18. febrúar 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Nefnd SÞ um afnám allrar mismununar gagnvart konum fjallar um Ísland

Gagnvirkt kort yfir þjóðir sem hafa fullgilt CHEDAW samninginn. Heimild OHCR
Kort yfir þjóðir sem hafa fullgilt CHEDAW samninginn. Heimild OHCR

 Ísland fór í gær fyrir nefnd Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum. Nefndin starfar á grundvelli alþjóðasamningsins um afnám slíkrar mismununar, CEDAW. Þetta er þetta í fimmta skipti sem nefndin skoðar framkvæmd samningsins á Íslandi en síðast fór Ísland fyrir nefndina árið 2008. Sendinefnd Íslands var skipuð fulltrúum frá velferðaráðuneytinu og utanríkisráðuneytinu ásamt fulltrúum frá fastanefndum Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum. Velferðarráðuneytið ber stjórnsýslulega ábyrgð á framfylgni samningsins sem felst m.a í skýrslugjöf og svara spurningum og tilmælum nefndarinnar.  

Nefndin hrósaði Íslandi fyrir löggjöf frá 2008 og 2014 um jafnréttismál sem og fyrir þær aðgerðir sem gripið var til í kjölfar efnhagskreppunnar til að minnka áhrif hennar á stöðu kvenna á Íslandi. Nefndin ræddi almennt um framkvæmd Íslands á ákvæðum samningsins og spurði m.a. út í stöðu kvenna á vinnumarkaði, stöðu foreldraorlofs, stöðu kvenna í íþróttum og aðgang að heilsuþjónustu, þ.m.t. aðgangs að getnaðarvörnum og rétti til fóstureyðingar.  

Nefndin hafði sérstakan áhuga á aðgerðum til að sporna við ofbeldi gegn konum, m.a. aðgerðum lögreglunnar á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu til að berjast gegn heimilisofbeldi. Af hálfu nefndarinnar kom fram gagnrýni á  lágt hlutfall kvenna innan lögreglunnar og í Hæstarétti og taldi hún það ekki samræmast ákvæðum samningsins.

CEDAW samningurinn, betur þekktur í daglegu tali sem Kvennasáttmálinn, var samþykktur 18. desember árið 1979 á allsherjarþingi SÞ en Ísland hefur verið aðili að sáttmálanum frá 18. júlí 1985. Í lok árs 2009 voru 185 ríki aðilar að honum. Í sáttmálanum sem inniheldur 30 ákvæði auk inngangsorða, eru grunnreglur um jafnrétti settar fram og áætlun um aðgerðir ríkja til að koma í veg fyrir mismunun gagnvart konum.

Nefnd um afnám mismununar gagnvart konum er sett á fót til að fylgjast með því að sáttmálinn sé virtur. Aðildarríki sáttmálans skila reglulega skýrslum um framkvæmd hans og eru þær yfirfarnar af nefndinni. Á grundvelli þessarar yfirferðar fundar nefndin síðan með fulltrúum aðildarríkjanna og birtir að lokum tilmæli til stjórnvalda viðkomandi ríkis þar sem hún getur þess sem vel er gert og kemur með með tilmæli varðandi þau ákvæði sem ekki er framfylgt með viðunandi hætti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum