Hoppa yfir valmynd
8. mars 2016 Utanríkisráðuneytið

Rakarastofa í höfuðstöðvum Atlantshafsbanadalagsins

Jafnréttisráðstefna undir merkjum Rakarastofunnar, sem Ísland og Kanada standa að, var haldin í höfuðstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Brussel í dag, á alþjóðlega kvennadaginn, 8. mars. Hugmyndin að baki ráðstefnunni er að virkja karla í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna en fyrsta Rakarastofuráðstefnan var haldin fyrir ári síðan hjá Sameinuðu þjóðunum í New York, en ætlunin er að halda Rakarastofur í öllum helstu alþjóðastofnunum sem Ísland á aðild að.

Í opnunarávarpi sínu sagði Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra að jafnréttismál væru einn af hornsteinum íslenskrar utanríkisstefnu. Rakarastofuráðstefnan væri leið til að virkja karla í jafnréttisbaráttu. “Við karlmenn eigum sjaldan frumkvæði í jafnréttismálum en við erum reiðubúnir að taka þátt í að jafna hlut kynanna."

Gunnar Bragi sagði Atlantshafsbandalagið hafa lagt sitt af mörkum til að styðja konur, m.a. með því að fylgja eftir ályktun öryggisráðs S.þ. nr. 1325 um konur, frið og öryggi. En gera þyrfti mun betur, hvetja konur til aukinnar þátttöku í öryggis- og varnarmálum og til að sækjast eftir ábyrgarstöðum í þeim. “Það er efnahagslegur og samfélagslegur ábati, það er hagur okkar allra að hafa konur með,” sagði Gunnar Bragi.

Á meðal annarra þáttakenda í ráðstefnunni voru Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, Marriet Schurmann, sérstakur fullrúi framkvæmdastjóra um málefni kvenna, friðar og öryggis, Petr Pavel, formaður hermálanefndar NATO og Gary Barker, baráttumaður fyrir kynjajafnrétti. Að lokinni Rakararáðstefnu ræddu fastafulltrúar bandalagsins jafnréttismál og hlutverk karla á fundi sem fastafulltrúi Íslands stjórnaði.

Fyrir Rakarastofuráðstefnuna áttu Gunnar Bragi og Stoltenberg fund þar sem þeir ræddu um jafnréttismál og Rakararáðstefnuna. Þá ræddu þeir stöðu öryggis- og varnarmála í aðdraganda leiðtogafundar bandalagsins í Varsjá í júlí nk. og aukin framlög Íslands til varnarmála.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum