Hoppa yfir valmynd
4. maí 2016 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Ábyrgð og skyldur í framhaldsskólum

Reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í framhaldsskólum hefur verið gefin út
Mynd-17

Reglugerðin um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í framhaldsskólum er nr. 326/2016 var birt í Stjórnartíðindum 19. apríl 2016. Hún er byggð á ákvæðum laga og aðalnámskrár en með skýrum fyrirmælum og leiðbeiningum sem ætlaðar eru til stuðnings og hagsbóta fyrir alla aðila framhaldsskólasamfélagsins. Helstu nýmæli í reglugerðinni eru að mælt er fyrir um starfrækslu fagráðs í eineltismálum sem verður ráðgefandi í málum sem ekki leysast á vettvangi skóla. Slíkt fagráð hefur verið starfrækt fyrir grunnskóla og gefið góða raun. Er gert ráð fyrir að fagráðið verði stofnað innan tíðar.

Í ágúst 2012 voru gerðar breytingar á lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008 þar sem bætt var við tveimur greinum, 33. a. um ábyrgð nemenda og 33. b. um skólabrag og þar með var komin lagastoð fyrir reglugerð. Í skýringum með frumvarpinu var lögð áhersla á að tryggja réttindi nemenda til náms og velferðar í skólum og um ábyrgð og skyldur allra aðila skólasamfélagsins til að skapa góðan skólabrag, til dæmis með tilliti til aðgerða gegn einelti í skólum.

Við gerð reglugerðarinnar var haft viðamikið samráð við þá sem málið varðar og einnig var tekið mið af sambærilegri reglugerð fyrir grunnskóla nr. 1040/2011, sem hefur reynst gagnleg.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum