Hoppa yfir valmynd
12. maí 2016 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra sækir leiðtogafund Bandaríkjanna og Norðurlanda í Washington DC

Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra sækir leiðtogafund Norðurlandanna og Bandaríkjanna, sem haldinn verður í Hvíta húsinu í Washington 13. maí 2016. Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra mun jafnframt sækja fundinn.

Leiðtogafundurinn er framhald fundar leiðtoga Norðurlandanna og Bandaríkjanna sem haldinn var í Svíþjóð árið 2013. Til umræðu verður samvinna Bandaríkjanna og Norðurlandanna á ýmsum sviðum alþjóða- og utanríkismála. Þá mun samtal leiðtoganna halda áfram yfir hádegisverði í boði utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Lýkur svo deginum með viðhafnarkvöldverði í Hvíta húsinu í boði forsetahjóna Bandaríkjanna.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum