Hoppa yfir valmynd
12. maí 2016 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ísland undirritar samkomulag um aukið gagnsæi í alþjóðlegum skattamálum

Ísland er í hópi sex ríkja sem í dag undirrituðu í Kína samkomulag á vegum Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) um aukið gagnsæi í starfsemi alþjóðlegra fyrirtækjasamsteypa, m.a. með því að heimila aðildarríkjum að skiptast sjálfvirkt og tvíhliða á yfirlitsskýrslum (Country-by-Country report).

Alls hafa 39 ríki gerst aðilar að samkomulaginu en auk Íslands skrifuðu Kanada, Indland, Ísrael, Nýja-Sjáland og Kína undir það í dag.

Samkomulagið er hluti af 13. aðgerð BEPS-áætlunar OECD. Það kveður á um að alþjóðafyrirtæki skili svonefndum aðal- og staðarskýrslum (master file and local file) beint til viðeigandi skattyfirvalda. Yfirlitsskýrslu (Country-by-Country Report) skal svo afhenda í því ríki sem móðurfélag alþjóðafyrirtækis er heimilisfast og þaðan skal henni deilt sjálfvirkt til annarra ríkja sem fyrirtækið starfar í á grundvelli upplýsingaskipta- og tvísköttunarsamninga.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið mun í framhaldinu vinna að innleiðingu reglnanna í íslenskan rétt en gert er ráð fyrir að vinnunni ljúki á þessu ári og reglurnar taki gildi í janúar 2017.

OECD tilkynnti jafnframt í vikunni að fimm ríki hefðu bæst í hóp 101 ríkis sem skuldbinda sig til þess að innleiða reglur um skilvirkari upplýsingagjöf í skattamálum (CRS-reglur). Á meðal þeirra eru Líbanon og Panama. Hið síðarnefnda skuldbatt sig til innleiðingar reglnanna árið 2014 en hvarf frá þeim áformum fyrr á þessu ári. Nú hefur Panama hins vegar staðfest að það hyggist innleiða reglurnar og fyrstu upplýsingaskiptin muni eiga sér stað á árinu 2018. Önnur ríki sem bæst hafa á listann eru Barein, Nárú og Vanúatú.

Í kjölfar birtingar Panama-skjalanna í apríl vinna G20-ríkin og stjórnvöld víða um heim að átaki til að auka gagnsæi í skattamálum svo komið verði í veg fyrir undanskot skatta og ólögmætt fjármagnsflæði. Til að mynda hafa allnokkur OECD-ríki farið af stað með verkefni um sjálfvirk upplýsingaskipti um raunverulega eigendur svo komið verði í veg fyrir dulið eignarhald.

Á næstkomandi tólf mánuðum telur OECD að mikilvæg þróun verði með innleiðingu reglna um sjálfvirk upplýsingaskipti (CRS) í fjölmörgum ríkjum, nýjum leiðum til að tryggja að upplýsingar um raunverulega eigendur verði innleiddar og loks mótun stefnu gagnvart ríkjum sem enn eru ófús til samstarfs á þessum vettvangi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum