Hoppa yfir valmynd
18. maí 2016 Matvælaráðuneytið

Til umsagnar: Reglugerð um lítil matvælafyrirtæki og hefðbundin matvæli

Markmiðið með nýrri reglugerð um lítil matvælafyrirtæki og hefðbundin matvæli er að auðvelda sláturhúsum, fiskmörkuðum og litlum matvælafyrirtækjum að uppfylla kröfur í hollustuhátta- og eftirlitsreglugerðum.

Með þessari reglugerð er verið að slá af ítrustu kröfum þannig að hægt sé að nota áfram hefðbundnar aðferðir á öllum stigum framleiðslu, vinnslu eða dreifingu matvæla. Ennfremur á meðfylgjandi reglugerð að leiðbeina litlum matvælafyrirtækjum varðandi byggingu, skipulag og búnað ákveðinna starfsstöðva.

Reglugerðinni er skipt upp í sex hluta:

  1. Almenn ákvæði.
  2. Aðlögun að kröfum fyrir sláturhús og fiskmarkaði.
  3. Aðlögun að kröfum sem gilda um lítil matvælafyrirtæki.
  4. Hefðbundin matvæli
  5. Sérstök aðlögun að kröfum fyrir lítil sláturhús.
  6. Eftirlit, viðurlög og gildistaka

Athugasemdir og ábendingar óskast sendar á [email protected] merkt „Lítil matvælafyrirtæki“.

Frestur til að skila umsögnum er til fimmtudags 16. júní nk.

Frekari upplýsingar veitir Baldur Sigmundsson, netfang: [email protected]

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum