Hoppa yfir valmynd
20. maí 2016 Forsætisráðuneytið

Grunnur lagður að næstu skrefum til losunar hafta á einstaklinga og fyrirtæki

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra sem markar næstu skref til losunar fjármagnshafta á Íslandi. Bjarni Benediktsson mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi nú síðdegis.

Frumvarpið er liður í heildstæðri aðgerðaáætlun um losun fjármagnshafta sem stjórnvöld kynntu í júní á síðasta ári. Fyrsta skrefið í þeirri áætlun var að leysa þann vanda sem slitabú fallinna fjármálafyrirtækja höfðu skapað og hefur sá þáttur verið til lykta leiddur að fullu.

Í aðgerðaáætlun stjórnvalda var boðað að næsta skref yrði að leysa þann vanda sem svokallaðar aflandskrónur skapa. Aflandskrónueignir eru nú yfir 300 milljarðar króna og er líklegt talið að eigendur þeirra kysu að umbreyta þeim í gjaldeyri ef slíkt væri heimilt. Það kynni að hafa neikvæð áhrif á greiðslujöfnuð og fjármálalegan stöðugleika. Dæmi um slíkar eignir eru innstæður, fjármunir á fjárvörslureikningi, skuldabréf og víxlar. Aflandskrónueignir verða áfram háðar sérstökum takmörkunum en megintilgangur frumvarpsins er að aðgreina aflandskrónueignir nánar en nú er gert  og með tryggilegum hætti.

Verði frumvarpið að lögum er áformað að Seðlabanki Íslands haldi gjaldeyrisútboð í næsta mánuði þar sem öllum aflandskrónueigendum verður gefinn kostur á að skipta aflandskrónueignum sínum í evrur.

Þær aflandskrónueignir sem ekki verða nýttar í útboði Seðlabankans munu sæta þeim takmörkunum sem boðaðar eru í frumvarpinu.

Í tæp átta ár hafa fjármagnshöftin takmarkað áhættudreifingu í eignasöfnum innlendra aðila og heft möguleika fyrirtækja til að nýta samstarfsverkefni við erlenda aðila og ávöxtunartækifæri erlendis. Efnahagslegt óhagræði sem af þessu hlýst fer vaxandi með tímanum.

Þessi liður í áætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta leggur grunninn að næstu skrefum í átt til losunar gjaldeyrishafta og munu þau snúa að heimilum og fyrirtækjum á Íslandi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum