Hoppa yfir valmynd
23. maí 2016 Matvælaráðuneytið

Guðrún Ragnarsdóttir er nýr formaður stjórnar Samkeppniseftirlitsins

Guðrún Ragnarsdóttir - mynd

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur skipað Guðrúnu Ragnarsdóttur formann stjórnar Samkeppniseftirlitins í stað Auðar Finnbogadóttur sem nýlega baðst lausnar.Guðrún hefur setið í stjórn Samkeppniseftirlitsins frá árinu 2013. Jafnframt hefur ráðherra skipað Ástu Dís Óladóttur í stjórnina.

Guðrún Ragnarsdóttir starfar sem ráðgjafi og er meðeigandi hjá Strategíu ehf. Hún er viðskiptafræðingur frá Carleton University í Ottawa, Kanada og með MBA frá Nyenrode University í Hollandi. Guðrún hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu en hún hefur bæði starfað í einka- og opinbera geiranum. Guðrún hefur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja og stofnana, m.a. sem stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins 2011 til 2014.

Ásta Dís Óladóttir er framkvæmdastjóri Norðurafls. Hún er með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun og doktorspróf í alþjóðaviðskiptum frá Copenhagen Business School. Hún hefur fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu þar sem hún hefur starfað bæði í opinbera- og í einkageiranum og hefur setið í fjölmörgum stjórnum, ráðum og nefndum. Þá var hún deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst um skeið.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum