Hoppa yfir valmynd
24. maí 2016 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á blómum.

Með vísan til 65. gr. og 65. gr. A, laga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar nr. 1091/2015, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutningsmagn blóma sem sótt skal um í stykkjatölu fyrir tímabilið 1. júlí - 31. desember 2016.

Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
Tollskrárnr.: stk. % kr./stk.
Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar:
0602.9091 Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna 01.07.-31.12.16 1.650 30 0
Aðrar:
0602.9093 Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna 01.07.-31.12.16 2.160 30 0
Lifandi:
0603.1400 Tryggðablóm (Chrysanthemums) 01.07.-31.12.16 6.500 30 0
0603.1909 Annars (afskorin blóm) 01.07.-31.12.16 118.750 30 0

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 15:00 miðvikudaginn 1. júní 2016.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum