Hoppa yfir valmynd
24. maí 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisráðherra ræddi sjálfbæra þróun á þingi WHO

Kristján Þór Júlíusson á 69. þingi WHO
Kristján Þór Júlíusson á 69. þingi WHO

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra ávarpaði í morgun 69. þing Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Ráðherra fjallaði um ýmsar áskoranir í heilbrigðismálum sem varða heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um sjálfbæra þróun til ársins 2030.

Kristján Þór fjallaði um það í ávarpi sínu hvernig markmið SÞ um sjálfbæra þróun á öllum sviðum tengjast, hafa áhrif hvert á annað og verði því ekki aðskilin. Þetta geri kröfu um aukna samvinnu, þvert á málefnasvið og ríka samþættingu á sviði stjórnsýslu og stefnumótunar.

Ráðherra gerði jafnrétti kynjanna að umtalsefni og nauðsyn þess að virkja karla í auknum mæli í umræðum um jafnréttismál. Það hefði einmitt verið markmið Barbershop-ráðstefnunnar sem Ísland og Súrínam héldu saman á vettvangi SÞ í New York. Hann ræddi einnig um stefnu þjóða í baráttunni gegn fíkniefnavandanum og enn fremur um nauðsyn þess að draga úr ójöfnuði, jafnt innan samfélaga og á milli þjóða.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum