Hoppa yfir valmynd
25. maí 2016 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Frumvarp um aðgerðir stjórnvalda gegn skattsvikum vegna eignarhalds í lágskattaríkjum

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra - mynd

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um aðgerðir stjórnvalda til að sporna við skattsvikum vegna eignarhalds í lágskattaríkjum. Frumvarpið felur í sér ýmsar breytingar á skatta- og tollalögum en tilefni þess eru nýlegar upplýsingar um eignir Íslendinga í skattaskjólum og möguleg undanskot frá skatti sem kalla á tafarlaus og afdráttarlaus viðbrögð af hálfu íslenskra stjórnvalda.

Í frumvarpinu eru lagðar til eftirfarandi breytingar:

  1.  Takmörkun á tapsfrádrætti félaga í lágskattaríki.
  2. Takmörkun á samruna og skiptingu yfir landamæri.
  3.  Flutningar lögheimilis eða eigna til ríkja sem teljast lágskattaríki verði takmarkaðir verulega.
  4. Endurskoðun á CFC-ákvæðinu, sem fjallar um skattlagningu aðila sem eiga beina eða óbeina eignaraðild að félögum, sjóðum eða stofnunum sem eru heimilisföst í lágskattaríkjum, í átt til frekari skýringar.
  5. Endurskoðun á upplýsingaskyldu fjármálastofnana og lögmanna.
  6. Heimild til endurákvörðunar skatts lengd úr sex árum í tíu ár vegna tekna og eigna í lágskattaríkjum sem ekki hefur verið gerð fullnægjandi grein fyrir í skattskilum.          
  7.  Fyrningartími sakar lengdur úr sex árum í tíu ár vegna tekna í lágskattaríkjum.
  8.  Aukið aðgengi innheimtumanna að upplýsingum um eignastöðu gjaldenda.
  9. Efling áhættustjórnunar og aukin greiningarvinna – greiningardeild tollstjóra.
  10.  Hert viðurlög vegna rangrar upplýsingagjafar við innflutning.

Starfshópur gegn skattundanskotum og nýtingu skattaskjóla

Þá hefur fjármála- og efnahagsráðherra skipað starfshóp til að gera  tillögur að breytingum á lögum, reglugerðum og verklagsreglum sem saman munu mynda frekari aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda gegn skattaundanskotum og nýtingu skattaskjóla almennt.

Má þar nefna BEPS-verkefnið svokallaða (e. Base Erosion and Profit Shifting), reglur um þunna eiginfjármögnun og takmörkun á frádrætti vegna arðs frá félögum í lágskattaríki.

Grunnurinn að vinnu starfshópsins eru tillögur frá embætti ríkisskattstjóra, skattrannsóknarstjóra og tollstjóra sem svar við beiðni ráðuneytisins um mat á þörf fyrir frekari úrræði þeim til handa til að bregðast við þeim aðstæðum sem nú eru uppi.

Í hópnum sitja:

  • Maríanna Jónasdóttir, skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneyti, formaður hópsins
  • Ingibjörg Helga Helgadóttir, lögfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneyti
  • Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri
  • Guðrún Jenný Jónsdóttir, lögfræðingur hjá ríkisskattstjóra
  • Bryndís Kristjánsdóttir, skattrannsóknarstjóri
  • Sigurður H. Ingimarsson, viðskiptafræðingur hjá skattrannsóknarstjóra
  • Snorri Olsen, tollstjóri
  • Jóhanna Guðbrandsdóttir, lögfræðingur hjá tollstjóra
  • Hafdís Ólafsdóttir, lögfræðingur í forsætisráðuneyti

Starfsmenn hópsins eru Benedikt Benediktsson og Steinar Örn Steinarsson. Starfshópurinn skal skila skýrslu með tillögum sínum til ráðherra í síðasta lagi 30. júní nk. 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum