Hoppa yfir valmynd
27. maí 2016 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Drög að reglugerð um tiltekin loftmengunarefni í kynningu

Blóm við himinn

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir drög að nýrri reglugerð sem fjallar m.a. um viðmiðunarmörk nokkurra loftmengunarefna og upplýsingar til almennings. Megintilgangur þessarar reglugerðar er að innleiða ákvæði tveggja tilskipana Evrópusambandsins um gæði andrúmslofts og hreinna loft í Evrópu.

Breytingarnar fela m.a. í sér að ríkari kröfur eru gerðar um miðlun upplýsinga til almennings auk breytinga á viðmiðunarmörkum nokkurra mengunarefna, þ.e. svifryks, brennisteinsdíoxíðs, köfnunarefnisdíoxíðs, og kolsýrings. Mörk fyrir köfnunarefnisoxíð, bensen, blý og óson breytast ekki.

Meðal breytinga má nefna að fjölda skipta sem heimilt er að fara yfir sólarhringsmörkum fyrir svifryk (PM10) er breytt og sett eru ný mörk fyrir fínt svifryk (PM2,5) sem ekki hafa áður verið í gildi. Þá er gert ráð fyrir að fella niður gróðurverndarmörk brennisteinstvíoxíðs (SO2) fyrir sólarhring en áfram nota ársmörk og vetrarmörk til að ná markmiðum um gróðurvernd til samræmis við það sem gerist annars staðar í Evrópu. Nánar má lesa um forsendur og tilgang breytinganna í meðfylgjandi greinargerð.

Reglugerðinni er ætlað að koma í stað reglugerðar nr. 251/2002 um brennisteinsdíoxíð, köfnunarefnisdíoxíð og köfnunarefnisoxíð, bensen, kolsýring, svifryk og blý í andrúmsloftinu og upplýsingar til almennings, sem og reglugerðar nr. 745/2003 um styrk ósons við yfirborð jarðar.

Umsögnum um reglugerðina skal skilað fyrir 13. júní nk. á netfangið [email protected] eða í bréfpósti, á umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Drög að reglugerð um brennisteinstvíoxíð, köfnunarefnistvíoxíð og köfnunarefnisoxíð, bensen, kolsýring, svifryk og blý í andrúmsloftinu, og um styrk ósons við yfirborð jarðar og upplýsingar til almennings. (pdf-skjal) (word-skjal)

Greinargerð með tillögu að nýrri reglugerð um brennisteinstvíoxíð, köfnunarefnistvíoxíð, bensen, kolsýring, svifryk og blý í andrúmsloftinu, um styrk ósons við yfirborð jarðar og upplýsingar til almennings. (pdf-skjal)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum